
Dupion Pigeon - Arte
Dupion Pigeon – Arte
Veggfóðursframleiðandinn Arte hefur alltaf haft ástríðu fyrir óvenjulegum efnum þar sem hönnuðir vörumerkisins skapa framúrskarandi veggfóður úr margs konar einstökum efnum víðs vegar að úr heiminum. Veggfóður úr náttúrulegum efnum er uppistaðan í hönnunarlínum Arte. Raffía, sísal, gljásteinn og bananabörkur eru aðeins nokkur af þeim töfrandi náttúruefnum sem notuð eru í ótrúlega fjölbreytt úrval Arte af veggfóðri. Dupion veggfóðrið er einmitt hannað sem virðingarvottur við fegurð náttúruefnanna.
Fágaður glæsileiki 100% silkis er ótvíræður. Uppbygging náttúrulegs þráðarins er óregluleg og í óreglulegri þykkt. Þetta gerir Dupion einstakt. Litbrigðin eru einnig mismunandi eftir birtufalli.
Dupion er handgert, textílveggfóður. Bakið er úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Strjúka má af veggfóðrinu með rökum klút. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
20.315 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun