Delta Cloth - Arte
Delta Cloth – Arte
Jafnvel þó hundrað ár séu nú liðin frá hinum stórkostlega taumlausa áratug eða „Roaring Twenties“, heldur þetta tímabil áfram að fanga ímyndunaraflið. Þá kom fram hinn glæsilegi og fremur óhóflegi Art Deco stíll, innblásinn af glitrandi bjartsýni og merkisviðburðum samtímans. Uppgötvun grafar Tútankamons í Konungadalnum í Egyptalandi, með gnægð fagurlega skreyttra muna og húsgagna, lék lykilhlutverk í að móta fagurfræði þriðja áratugarins. Luxor línan sækir innblástur í þetta líflega tímabil. Geómetrísk hönnunin er hlýleg hylling til Art Deco og egypskra áhrifa, með endurtúlkun á innfelldum vefnaði í náttúrulegum efnum; notuð er nýjasta prenttækni og litapallettan sömuleiðis náttúruleg. Bæði útlit og áferð eru einstaklega nákvæm og raunveruleg, á meðan ríkulega sviðsett heilmynd fullkomnar hönnunarlínuna.
Delta er frjálsleg túlkun á hlykkjóttum farvegi Nílar, líflínu Forn-Egypta, og mikilfengleika ósa hennar.
Delta er veggfóður með baki sem gert er úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
44.728 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun
