Delta Canyon - Arte

44.728 kr. rúlluverð

Delta Canyon – Arte

Jafnvel þó hundrað ár séu nú liðin frá hinum stórkostlega taumlausa áratug eða „Roaring Twenties“, heldur þetta tímabil áfram að fanga ímyndunaraflið. Þá kom fram hinn glæsilegi og fremur óhóflegi Art Deco stíll, innblásinn af glitrandi bjartsýni og merkisviðburðum samtímans. Uppgötvun grafar Tútankamons í Konungadalnum í Egyptalandi, með gnægð fagurlega skreyttra muna og húsgagna, lék lykilhlutverk í að móta fagurfræði þriðja áratugarins. Luxor línan sækir innblástur í þetta líflega tímabil. Geómetrísk hönnunin er hlýleg hylling til Art Deco og egypskra áhrifa, með endurtúlkun á innfelldum vefnaði í náttúrulegum efnum; notuð er nýjasta prenttækni og litapallettan sömuleiðis náttúruleg. Bæði útlit og áferð eru einstaklega nákvæm og raunveruleg, á meðan ríkulega sviðsett heilmynd fullkomnar hönnunarlínuna.

Delta er frjálsleg túlkun á hlykkjóttum farvegi Nílar, líflínu Forn-Egypta, og mikilfengleika ósa hennar.

Delta er veggfóður með baki sem gert er úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.

Leiðbeiningar fyrir veggfóður með non-woven bakhlið

44.728 kr. rúlluverð

Í boði sem biðpöntun

Rúllubreidd: 70 cmRúllulengd: 10 mMynsturhæð: 64 cm
Áætla rúllufjölda
m
m
cm
m
cm
Niðurstöður

Endilega stimplið tölur í reiknivélina 2.1 sem verða 3 rúllur
Heildarverð:

SÉRPÖNTUN - EKKI SKILAVARA: Reiknivélin metur u.þ.b. það magn af veggfóðri sem þú þarfnast miðað við þínar mælingar. Sérefni taka ekki ábyrgð á ofáætlun eða skorti á veggfóðursmagni á grundvelli þessara útreikninga þar sem of margir þættir geta spilað inn í efnisþörf. Þar má nefna ónákvæmar mælingar, dyr, glugga, mynsturgerð, mistök í uppsetningu og fleira. Ef flókið er að finna út magn mælum við með að ráðfæra sig við fagmann áður en pantað er.

Vörunúmer: 19402 Vöruflokkar: , , Stikkorð: ,

Tengdar vörur

Karfa

0
image/svg+xml

No products in the cart.

Halda áfram að versla