Curve Dark Taupe - Arte
Curve Dark Taupe – Arte
Curve er ofið textílefni með vott af gamaldags yfirbragði en þannig efni voru einmitt afar vinsæl um miðbik 20. aldar í textíliðnaði og hjá frægum tískuhúsum, t.d. Chanel. Slík vinnsla á efnum er yfirleitt nefnd „bouclé“ sem þýðir eiginlega „hrokkinn“, en það eins og misþykkt, krullað garnið standi svolítið upp úr efninu hér og þar og myndar notalega, grófofna áferð. Við sjáum svona vefnað mikið í bólsturefnum sófa og hægindastóla í dag. Curve mynstrið sjálft er byggt upp af mjúkum hálfhringum sem eru umluktir ferningum. Þetta veggfóður hefur töluvert verið notað á rúmgafla. Litur: Brúnn með vínrauðum undirtóni.
Curve textílefnið er lagt ofan á misþykkan svamp og gefur því skemmtileg þrívíddaráhrif. Í leiðinni nást jákvæð hljóðvistaráhrif. Veggfóðrið er með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið beint á vegginn. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með svampi við upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. ATH. Þetta veggfóður er selt í lengdarmetrum, ekki stöðluðum rúllum.
44.814 kr. lengdarmetraverð





























Bastoni Cream - Cole & Son
Twine Gray - Rebel Walls
Lo Hazel - Sandberg
Pure Sunflower, Chalk/Silver - Morris & Co
Bird & Pomegranate, Blue/Sage - Morris & Co
Lin Normandie Linen - Arte
Terre de Lin Dada - Arte
Lin Atlantic - Arte
Lin Normandie Tortue - Arte
Eclipse Beige Green - Rebel Walls
Cascade, Violet - Cole & Son
Pensill - Purdy, Syntox Angular 50mm
Lin Smoke - Arte
Newport - Rebel Walls
Pensill - Anza, Super Effective Flat 35mm