Chrysanthemum Toile Willow - Morris & Co
Chrysanthemum Toile Willow – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Chrysanthemum mynstrið var upphaflega hannað fyrir veggfóður árið 1877. Í þessari framsetningu dregur myndsköpunin fram smáatriði og glæsileika upprunalega textílmynstursins. Það er fáanlegt í nokkrum fallegum litasamsetningum.
Chrysanthemum er úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Þrífið límbletti af framhlið með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
35.205 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun



























Veggfóðurssvampur - Bostik Nr.3
Stravinsky, Metallic Silver - Cole & Son
Yfirbreiðsluhylki - Tesa, EasyCover L/XL
Terre de Lin Dulce - Arte
Gocken Jobs Ros och Lilja - Boråstapeter
Pensill - Purdy, Pro-Extra Monarch 50mm
Linnea, Blue - Sandberg
Moln, Misty Blue - Sandberg
Biseau Warm White - Arte
Puro Toffee - Arte
Lin Straw - Arte
Soft Bricks, Grey - Rebel Walls
Tulle Cream - Arte
Kefli - Friess, Futura lakkrúlla 25cm