Canvas Urban – Arte
45.900 kr. rúlluverð
Canvas er innblásið af áferð hörs á fallegan og tímalausan hátt. Ofið mynstrið og einstaklega mött áferðin sýnir greinilega einkennandi uppbyggingu ekta hörvefnaðar. Canvas kemur í 12 náttúrulitum. Þessi útgáfa er í milligráu.
Þetta veggfóður má hengja upp á tvo vegu: Annars vegar frjálst og hins vegar þannig að þræðirnir í mynstrinu passa saman þvert á veggfóðurslengjurnar á veggnum. Ef hið seinna er valið þá þarf að gera ráð fyrir því aukalega við pöntun en mynstur endurtekur sig á 90 cm fresti. Það verður því aðeins meiri afskurður með þeirri aðferð.
Canvas er vínilveggfóður á pappírsbaki. Veggfóðrið er mjög þvottþolið og auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Í boði sem biðpöntun





















































































































Celeste, Misty Blue - Sandberg
Narina, Platinum - Cole & Son
Cheetah Prowl, Bronze - Cole & Son
Tree of Life, Sky Blue - Cole & Son
Piccadilly - Cole & Son
Hollie, Pistachio - Sandberg
Emilia Ilke, Clay - Sandberg
Injisuthi, Stone & Sand - Cole & Son
Injisuthi, Viridian - Cole & Son
Cheetah Prowl, Slate - Cole & Son
Tree of Life, Light Blue - Sandberg
Royal Giraffe, Stone & Mulberry - Cole & Son
Flamenco Fan - Cole & Son