Canvas Linen - Arte
Canvas Linen – Arte
Canvas er innblásið af áferð hörs á fallegan og tímalausan hátt. Ofið mynstrið og einstaklega mött áferðin sýnir greinilega einkennandi uppbyggingu ekta hörvefnaðar. Canvas kemur í 12 náttúrulitum. Þessi útgáfa er í ljósum hörtón.
Þetta veggfóður má hengja upp á tvo vegu: Annars vegar frjálst og hins vegar þannig að þræðirnir í mynstrinu passa saman þvert á veggfóðurslengjurnar á veggnum. Ef hið seinna er valið þá þarf að gera ráð fyrir því aukalega við pöntun en mynstur endurtekur sig á 90 cm fresti. Það verður því aðeins meiri afskurður með þeirri aðferð.
Canvas er vínilveggfóður á pappírsbaki. Veggfóðrið er mjög þvottþolið og auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
45.900 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Oriental Garden - Boråstapeter
Blossom Mini - Boråstapeter
Idun Mineral Grey - Sandberg
Hicks' Grand - Cole & Son
Daphne - Boråstapeter
Lin Murano - Arte
Melville, Soot & Snow - Cole & Son
La Dérive Nougat
Capas 34301 - Arte
Nelson Soft Eucalyptus - Arte
Musa Gold Leaf - Arte
Temper Green Tea - Arte
CX190 U-Profile ljósalisti
Lovisa, Pink - Sandberg