Camago Bone - Arte
Camago Bone – Arte
Veggfóðursframleiðandinn Arte hefur alltaf haft ástríðu fyrir óvenjulegum efnum þar sem hönnuðir vörumerkisins skapa framúrskarandi veggfóður úr margs konar einstökum efnum víðs vegar að úr heiminum. Veggfóður úr náttúrulegum efnum er uppistaðan í hönnunarlínum Arte. Raffía, sísal, gljásteinn og bananabörkur eru aðeins nokkur af þeim töfrandi náttúruefnum sem notuð eru í ótrúlega fjölbreytt úrval Arte af veggfóðri. Camago línan er einmitt gerð sem virðingarvottur við fegurð náttúruefnanna.
Camago mynstrið á rætur að rekja til eins mest framandi staðar í heiminum: Filippseyja. Ein mesta auðlind landsins liggur í bananatrénu en Arte hefur notað börk trésins til að skapa þetta einstæða veggfóður. Breiðu, lituðu ræmurnar eru límdar saman í höndunum til að mynda einstaka og fjölbreytilega áferð. Hægt er að sjá saumana en það er með ráðum gert og undirstrikar sjarmann sem felst í náttúrulegum uppruna.
Camago er handgert, náttúrulegt veggfóður úr bananaberki. Það er með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn en úðið bakhlið veggfóðursins fyrst með vatni. Strjúka má af veggfóðrinu með rökum klút. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Leiðbeiningar fyrir veggfóður úr náttúruefnum
19.718 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun











Lin Nautique - Arte
Nongo Washed White - Arte
CX126 loftalisti
Canvas Pebble Grey - Arte
Wundervogel - Boråstapeter
Chanderi Toffee - Arte
Olof - Boråstapeter
Simon, Charcoal - Sandberg
Summer Lily - Cole & Son
Etched Landscape - Boråstapeter
Gioco Moss - Arte
Tela Lagoon Green - Arte
Klint, Gray - Sandberg
Mekka - Boråstapeter
Palm Jungle - Cole & Son
Lin Normandie Chanvre - Arte
Papillon Sepia - Arte
Pandan Camouflage - Arte
Canvas Sage - Arte
Palm Jungle - Cole & Son
Veggfóðurssvampur - Bostik Nr.3