Benoe Bark – Arte
44.728 kr. rúlluverð
Jafnvel þó hundrað ár séu nú liðin frá hinum stórkostlega taumlausa áratug eða „Roaring Twenties“, heldur þetta tímabil áfram að fanga ímyndunaraflið. Þá kom fram hinn glæsilegi og fremur óhóflegi Art Deco stíll, innblásinn af glitrandi bjartsýni og merkisviðburðum samtímans. Uppgötvun grafar Tútankamons í Konungadalnum í Egyptalandi, með gnægð fagurlega skreyttra muna og húsgagna, lék lykilhlutverk í að móta fagurfræði þriðja áratugarins. Luxor línan sækir innblástur í þetta líflega tímabil. Geómetrísk hönnunin er hlýleg hylling til Art Deco og egypskra áhrifa, með endurtúlkun á innfelldum vefnaði í náttúrulegum efnum; notuð er nýjasta prenttækni og litapallettan sömuleiðis náttúruleg. Bæði útlit og áferð eru einstaklega nákvæm og raunveruleg, á meðan ríkulega sviðsett heilmynd fullkomnar hönnunarlínuna.
Benoe er endurtúlkun á klassísku rúmfræðilegu mynstur. Hönnunin dregur nafn sitt af goðsagnakenndum fugli úr egypskri þjóðtrú sem, líkt og sólin, rís upp á ný á hverjum morgni.
Benoe er veggfóður með baki sem gert er úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
Í boði sem biðpöntun
Milo, Spring Green - Sandberg
Hanna, Clay - Sandberg
Jasmine, Garden Green - Sandberg
Betty, Blue - Sandberg
Eclipse Red Blue - Rebel Walls
Emmie, Sandstone - Sandberg
Linn, Pink - Sandberg
Leon, Garden Green - Sandberg
Raphaël Light Blue - Sandberg
Tree of Life, Burgundy - Sandberg
Estelle, Light Blue - Sandberg
Gustav Light Green - Sandberg
Celeste, Indigo Blue - Sandberg
Audrey, Dark Green - Sandberg
Clara, Oat - Sandberg