Aspero Malt - Arte
Aspero Malt – Arte
Aspero mynstrið er endursköpun á ekta höráferð en með grófari vefnaði. Lífleg áhrif nást með því að sameina mismunandi dempaða litatóna í sama vefinn. Áferðin skapar samstundis hlýja, notalega tilfinningu í rýmið. Aspero kemur í 6 litum. Þessi útgáfa er í gulbrúnum og dröppuðum tónum.
Þetta veggfóður má hengja upp á tvo vegu: Annars vegar frjálst og hins vegar þannig að þræðirnir í mynstrinu passa saman þvert á veggfóðurslengjurnar á veggnum. Ef hið seinna er valið þá þarf að gera ráð fyrir því aukalega við pöntun en mynstur endurtekur sig á 91 cm fresti. Það verður því aðeins meiri afskurður með þeirri aðferð.
Aspero er vínilveggfóður á pappírsbaki. Veggfóðrið er mjög þvottþolið og auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
45.900 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Handfang - Friess, 25cm
Rainbow World - Rebel Walls
Alma Mocha - Arte
Trellis Misty Blue - Sandberg
Opulence, Jade - Rebel Walls
Chinoiserie Chic, Cobalt - Rebel Walls
Malabar - Cole & Son
Titania, Metallic Gilver on Taupe - Cole & Son
Forest Toile, Blue - Sandberg
Temper Lavender Grey - Arte
Latus Elephant Grey - Arte
Kefli - Friess, MagicFinish 11cm
Hræra fyrir borvél - Mako, 60mm
Rosewood Night - Boråstapeter
Emil, Beige - Sandberg
Linne White - Sandberg
Campo Sandstone - Arte