Adobe Cream – Arte
61.500 kr.
Adobe er mynstur úr Babylon línunni, en Babýlon í Mesópótamíu var fyrsta stórborg heimsins, oft nefnd vagga siðmenningarinnar. Innblásturinn að Adobe mynstrinu er fenginn þaðan úr fornum fleygbogahandritum sem voru skorin út og teiknuð í leirtöflur og klettaveggi. Þessi myndhöggvaratækni í leir er viðmið Babylon línunnar. Hönnun hennar var einmitt þannig unnin að leirtöflur voru mótaðar í höndunum af mikilli nákvæmni og síðan var mynstrið yfirfært á textílefni fyrir veggfóður. Þrívíddarahrifin minna helst á höggmyndaflísar unnar í gifs. Mynstrið Adobe leikur sér með ýmiss konar upphleypt form, bæði á hæð og dýpt. Óreglulegu ferningarnir og þríhyrningarnir skapa heillandi, geómetrísk áhrif. Hönnunin vísar til óbrenndra leirtaflna (adobe) sem eru þurrkaðar í sólinni.
Adobe er selt í plötum 90 cm x 80 cm. Mynstrið má endurtaka eins oft og vill.
Adobe veggefnið er mjúkur textíll með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs – límið þarf að vera sterkara en það sem notað er við uppsetningu hefðbundins veggfóðurs vegna þyngdar veggmyndanna. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með svampi við upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
Í boði sem biðpöntun
Jasmine & Serin Symphony - Cole & Son
Hollie, Misty Blue - Sandberg
Jasmine & Serin Symphony - Cole & Son
Magnus, Dark Gray - Sandberg
Geranium - Cole & Son
Bougainvillea - Cole & Son
Flamenco Fan - Cole & Son
Alicatado - Cole & Son
Angel's Trumpet - Cole & Son
Woodland Stripe - Boråstapeter
Pine Tree - Boråstapeter
Lin Bord de Seine - Arte