Námskeið – nýtt alhliða spartl

Í vikunni komu hingað menn frá Nordsjö til að kynna fyrir málurum nýtt alhliða sprautuspartl. Þetta létta og áferðarfallega spartl er tær snilld því nú getur málarinn notað eitt og sama spartlið alls staðar í verkið. Spartlið heitir Professional Multisprutspackel. Stefan Wahlberg yfirmálari í þróunardeildinni hjá Nordsjö hafði sérstakt orð á því að íslensku málararnir væru einstaklega fróðleiksfúsir og faglegir.

Stefan yfirmálari hjá Nordsjö sýndi áhugasömum málurum handtökin

Stefan yfirmálari hjá Nordsjö sýnir áhugasömum málurum handtökin í nýbyggingu

Faglegir okkar menn!

Flottur hópur sem fór svo heim í Sérefni í grillaðan borgara frá Búllunni og horfði á leikinn

Flottur hópur sem fór svo heim í Sérefni í grillaðan Búlluborgara og horfði á leikinn

Karfa

0
image/svg+xml

Engar vörur eru í körfunni.

Continue Shopping