Dýpi
Dýpi er málning – nýsköpunarverkefni sem hefur verið í þróun í rúmlega þrjú ár en hugmyndin er mun eldri. Málningin Dýpi er algjörlega eiturefnafrí og byggir á kalkefnum og náttúrulegu litarefni. Hún er skyld kalkmálningu, sem kallast „lime paint“ á ensku, en er framleidd á sjálfbæran hátt úr íslenskum steingerðum kalkþörungum. Litapallettan er kennd við Arnarfjörð á Vestfjörðum þar sem kalkþörungurinn er tíndur.

Sagan á bak við fyrirtækið
Dýpi var stofnað af G. Sigríði Ágústsdóttur (Sirrý) og Árnýju Þórarinsdóttur arkitekt. Sirrý hafði gengið með hugmyndina um að nýta þörungana til vöruframleiðslu og þar með atvinnusköpunar í yfir tíu ár. Ómar og Árný Helga í Sérefnum komu síðan inn í eignarsamstarfið með sérkunnáttu í uppbyggingu málningar, sölunet og belgískan samstarfsaðila sem er sérhæfður framleiðandi í kalk- og litarefnum. Saman hefur hópurinn unnið sig áfram í þróun vörulínu sem verður tilbúin seinni hluta árs 2026. Dýpi var tilnefnt til hönnunarverðlauna Íslands árið 2025 og tekur nú þátt í stærstu hönnunarsýningu Skandinavíu, 3daysofdesign, í boði íslenska sendiráðsins í Kaupmannahöfn og Hönnunarmiðstöðvar Íslands.

Málningin
Útlit Dýpis málningarinnar er alveg einstakt. Það er margslungið þar sem skiptast á birta og skuggar og áferðin er bæði mjúk og gróf því muldir þörungarnir gefa henni kornótta áferð. Það þýðir dásamleg dýpt sem spilar svo fallega saman með mildum náttúrutónunum.
Nú þegar stefnan í innanhússhönnun er að gera rými hlýlegri og persónulegri hentar Dýpi afar vel. Áferðin og litaskuggarnir fara mjög svo eftir aðferð við málum og tegund af pensli en málningin er alltaf pensluð á flötinn. Litapallettan endurspeglar litina í hafinu og kringum fjörðinn, með sjálfan þörungurinn fyrir miðju, bæði blómstrandi sterkbleikan og milljóna ára gamlan í ljósu steingerðu formi. Litirnir bera nöfn tengd náttúru Arnarfjarðar. Þeir eru Svartalogn, Hafblær, Fjörumosi, Sandsúra, Hafleir, Fjörusteinn, Hvítalogn, Brimskúm, Ægisró, Hafblóm og Þari.
Dýpi er málning fyrir alla, hún er auðveld í notkun og er bara um að gera að leika sér með efnið þar til því útliti er náð sem óskir standa til. Þetta er vissulega handverk sem lærist en verður aldrei eins milli manna. Það verður til eitthvert persólulegt samspil við efnið sem er svo skemmtilegt.

Framhaldið
Þó allir geti orðið góðir málarar með Dýpi er fókus dýpishópsins settur á hönnunarheiminn; á arkitekta og þau verkefni sem eru í stærra lagi. Það eru aðeins leyfi til næstu 40 ára til að tína þennan kalkþörung og þá í takmörkuðu magni. Það gerir vöruna sérstaka að ekki er endalaus uppspretta af hráefninu. Því er góð stefna að hún veljist mest í þau verkefni sem er búið að hugsa allan hringinn. Þar eru fagmenn sem velja málninguna út frá umhverfissjónarmiðum, sjálfbærni og bláa hagkerfinu. En Dýpi fer auðvitað inn á öll falleg heimili og passar alls staðar.