
Nýja heimilissýningin í Laugardalshöll verður spennandi heim að sækja. Hún heitir Amazing Home Show og fer fram 19.-21. maí. Við munum kannski eftir gömlu heimilissýningunum sem voru veglegar og ákaflega vinsælar meðal almennings fyrir ansi mörgum árum. Vonandi tekst að skapa slíka stemningu nú og til frambúðar. Það er alltaf gaman að ráfa á milli bása og skoða fallegar heimilisvörur og þjónustu fyrir nútímaheimilið – allt á einum stað.
Sérefni verða á bás C11, á góðum stað gegnt Draumaherbergjum Friðriks Dórs og Þórunnar Antoníu. Herbergin þeirra verða máluð í flottum litum frá okkur. Á bás C11 ætlum við að sýna heitustu litina og bjóðum sýningargestum góð afsláttarkjör á hágæða málningarvörum frá Nordsjö og Sikkens. Einnig verðum við með sýnishorn af kalkmálningunni vinsælu og heilan vegg af listum og rósettum. Við Sérefnamæðgurnar þrjár stöndum vaktina og kynnum m.a. nýjustu litalínurnar frá mörgum af þekktustu hönnuðum Skandinavíu. Samanlagt höfum við margra ára reynslu í notkun málningarefna og litaráðgjöf og er Auður okkar þar að auki með háskólapróf í myndlist og litafræðum. Á laugardeginum verður svo með okkur innanhússarkítektinn Lóa Biering sem aðstoðar áhugasama gesti við að velja liti sem henta heimili og stíl hvers og eins. Hún tekur einnig að sér stærri verkefni í innanhússráðgjöf.
Verið innilega velkomin!




Latus Sand - Arte
Canvas Chimney - Arte
Manchas Saffron - Arte
Itaya Dove Grey - Arte
Corteza 34204 - Arte
Terre de Lin Dada - Arte
Cashmere Cinnamon - Arte
Matiz Taupe - Arte
Facet Pebble Grey - Arte
Urban Turquoise - Arte
Terre de Lin Voile - Arte
Tamba Coral - Arte
Lin Bottle Green - Arte
Wild Tulip & Vine, Nettle/Woad - Morris & Co
Bluebell & Peony Border, Bayleaf/Manilla - Morris & Co