UV pallaolía - vatnsþynnanleg
UV pallaolía – vatnsþynnanleg
Tinova UV Super Terrace
Tinova UV Super Terrace er vatnsþynnanleg viðarolía ætluð á palla og húsgögn úr gagnvörðu timbri. Olían smýgur vel í undirlagið og fyrirbyggir raka- og sprungumyndun í viðnum. Mikill kostur er að hægt er að nota Tinova UV Super Terrace pallaolíuna bæði glæra og litaða. Hún inniheldur UV-ljóssíur sem þýðir að hún ver viðinn einnig ólituð og viðurinn gránar (sólbrennur) ekki. Þó er mælt með að bera aðeins oftar á flötinn ef notuð er glær olía til að tryggja bestu endingu varnar og viðar. Glær Tinova UV Super Terrace hentar einstaklega vel á litaðan olíuborinn við þar sem óskað er að halda litnum óbreyttum, en með hámarksvörn. Mælt er með Sikkens Cetol efnum á harðvið.
Vöruflokkar: Málað utanhúss, Málning fyrir hús, Viðarvörn