Hrein akrýlútimálning
Hrein akrýlútimálning
Murtex Acrylic
Murtex Acrylic er vatnsþynnanleg, almött utanhússmálning fyrir steypta fleti. Hún er gerð úr 100% akrýl bindiefni og hönnuð til að halda mýkt og sveigju, sem skilar betri endingu. Murtex Acrylic hefur góða öndun en lokar samt fyrir steinefna-útfellingar úr steypunni sem er algengt vandamál í dökkri útmálningu. Hún hefur líka háan litstöðugleika. Murtex Acrylic er til í svörtum litastofni, sem aftur býður upp á einstaka þekju og endingu í dekkstu litunum. Svansvottuð.
Murtex Acrylic er ætlað til notkunar utanhúss á steinsteypu, múrstein o.fl. (ath. á múrklæðningar/einangrun utan frá skal nota síloxanmálningu, þ.e. Murtex Siloxane eða Alphaloxan Flex). Við málun á pússaðri steypu er mikilvægt að flöturinn sé þéttur og vel bundinn og helst liðið ár frá ásetningu pússningar.