Tasar Marigold - Arte
Tasar Marigold – Arte
Tasar er innblásið af ekta silki. Fallegt í einfaldleika sínum, með fíngerðum ójöfnum silkivefnaðar. Þessi náttúrulega vara leiðir alltaf af sér ríkulega, litsterka tóna án þess að vera yfirþyrmandi. Tasar kemur í 11 litum. Þessi útgáfa er í björtum sólgulum lit.
Þetta veggfóður má hengja upp á tvo vegu: Annars vegar frjálst og hins vegar þannig að þræðirnir í mynstrinu passa saman þvert á veggfóðurslengjurnar á veggnum. Ef hið seinna er valið þá þarf að gera ráð fyrir því aukalega við pöntun en mynstur endurtekur sig á 90 cm fresti. Það verður því aðeins meiri afskurður með þeirri aðferð.
Tasar er vínilveggfóður á pappírsbaki. Veggfóðrið er mjög þvottþolið og auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
45.900 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Fonteyn, Parchment - Cole & Son
Macchine Volanti Slate Blue & Metallics - Cole & Son (2 rúllur)
Facet Pure Gold - Arte
Ruban Palmier - Arte
Woods & Pears - Cole & Son
Flor Imaginaria Pheasant - Arte
Frutto Proibito Print Room Blue & Lemon - Cole & Son
Alma Mocha - Arte