
Rifine steinefnaspartl
Rifine steinefnaspartl
Rifine
Rifine er fjölhæft, náttúrulegt og hágæða kalkspartl án allra plastefna. Það er afar auðvelt í notkun og er einstaklega fallegt komið á flötinn. Rifine er frábær lausn til að sameina kröfur nútímans um ekta jarðefnaútlit, styrkleika og umhverfismild áhrif. Rifine státar af sannfærandi náttúrulegu steinútliti og upplifun við snertingu og færir jafnvægi inn í húsið. Það er því einkar vinsælt meðal almennings jafnt sem arkitekta og hönnuða sem gera miklar útlitskröfur.
Rifine hentar á veggi í þurrarýmum innanhúss og getur gefið óteljandi útlitsmöguleika, ýmist matta eða gljáandi og fæst í mörgum jarðlitum. Ein til tvær umferðir eru settar á flötinn. Unnt er að fá fram meiri litadýpt og lifandi litatóna með skyggingaraðferð. Mögulegt er að vinna með spartlið yfir langan tíma (hefur langan opinn tíma) til að ná fram „ekta“ míneralískri áferð á veggflötinn sem spilar fallega með hvaða hönnunarstíl sem er.