Reliure Caramel - Arte

72.379 kr. lengdarmetraverð

Reliure Caramel – Arte

Allures línan er hylling til franska „savoir vivre“ lífsstílsins á nítjándu öld þegar mikilvægast þótti að hegða sér og lifa á fágaðan hátt. Í innanhússhönnun voru klassísk mynstur endurhönnuð með nútímalegri blæ þar sem smekkvísi og verkkunnátta sameinast í vönduðum efnum, nákvæmu handverki og afburða fallegum frágangi.

Látlausa veggklæðningin Reliure er unnin úr burstuðu rúskinni sem skorið er í ferninga og síðan handsaumað og fléttað saman. Nafnið Reliure (fr. binding) til heiðurs bókbandslistinni og vísar til þess þegar stakar síður eru sameinaðar af nákvæmni í eina heild; þetta er snjöll myndlíking fyrir samhengið í heimi handverks.

Reliure er gert úr 100% ekta nautshúð. Örlítið óreglulegt útlit og litamunur getur átt sér stað. Lítil frávik í hlutföllum eru eðlislæg í handverksframleiðsluferlinu. Þess vegna er ekki alltaf hægt að tryggja fullkomlega nákvæma samsvörun við uppsetningu. Reliure er með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Eindregið er mælt með að fá fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.

Leiðbeiningar fyrir veggfóður úr náttúruefnum

72.379 kr. lengdarmetraverð

Í boði sem biðpöntun

Rúllubreidd: 100 cmMynsturhæð: 25 cm
Áætla fjölda lengdarmetra
m
m
cm
cm
Niðurstöður

Endilega stimplið tölur í reiknivélina 2.1 sem verða 3 rúllur
Heildarverð:

SÉRPÖNTUN - EKKI SKILAVARA: Reiknivélin metur u.þ.b. það magn af veggfóðri sem þú þarfnast miðað við þínar mælingar. Sérefni taka ekki ábyrgð á ofáætlun eða skorti á veggfóðursmagni á grundvelli þessara útreikninga þar sem of margir þættir geta spilað inn í efnisþörf. Þar má nefna ónákvæmar mælingar, dyr, glugga, mynsturgerð, mistök í uppsetningu og fleira. Ef flókið er að finna út magn mælum við með að ráðfæra sig við fagmann áður en pantað er.

Tengdar vörur

Karfa

0
image/svg+xml

No products in the cart.

Halda áfram að versla