Raphia Mauve - Arte
Raphia Mauve – Arte
Veggfóðursframleiðandinn Arte hefur alltaf haft ástríðu fyrir óvenjulegum efnum þar sem hönnuðir vörumerkisins skapa framúrskarandi veggfóður úr margs konar einstökum efnum víðs vegar að úr heiminum. Veggfóður úr náttúrulegum efnum er uppistaðan í hönnunarlínum Arte. Raffía, sísal, gljásteinn og bananabörkur eru aðeins nokkur af þeim töfrandi náttúruefnum sem notuð eru í ótrúlega fjölbreytt úrval Arte af veggfóðri. Raphia veggfóðrið er einmitt hannað sem virðingarvottur við fegurð náttúruefnanna.
Raphia veggfóðrið er úr samofnum raffíatrefjum og grófum þráðum. Óregluleg áferð vefsins undirstrikar náttúrlegan karakter efnisins. Mött efnin mynda fallega andstæðu við bakgrunninn sem ýmist er með málm- eða lakkaðri áferð.
Raphia er veggfóður úr náttúruefnum. Bakið er úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn en úðið bakhlið veggfóðursins fyrst með vatni. Strjúka má af veggfóðrinu með rökum klút. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
20.893 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun








Forest Toile, Red - Sandberg
Savuti, Soot on Tangerine - Cole & Son
Marsh Straw - Arte
Itaya Charcoal - Arte
Zen Mural, Indigo Blue - Sandberg
Lin Hemp - Arte
Slípifilt grátt - Mirka 152 x 229mm UF 1500
Arne Jacobsen Trapez - Boråstapeter
Weave Espresso - Arte
Éclat Smoke - Arte
Stars, Metallic Gold on Taupe - Cole & Son
Cuba, Green - Rebel Walls