Persian Tulip, Umber/Mineral Blue - Morris & Co
Persian Tulip, Umber/Mineral Blue – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun fyrir almenning (fremur en aðalinn), með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau stílnum í byggingar-, nytja- og málaralist á 20. öld. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag, enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Morris & Co. X The Huntington – The Unfinished Works, er einstök hönnunarlína sem byggir á skissum William Morris og listræns stjórnanda hans, John Henry Dearle. Þessi mynstur hafa nú verið endurlífguð og fullgerð í samstarfi við Huntington Library, Art Museum og Botanical Gardens í Kaliforníu.
Mynstrið Persian Tulip var upphaflega hannað fyrir textíl. Þessi nýja endurgerð sem veggfóður heiðrar hefðbundna persneska fagurfræði, sem bæði William Morris og hans samverkamaður John Henry Dearle dáðust mikið að. Áberandi skálínur leiða augað yfir mynstrið þar sem túlípanahöfuð sitja keik á keðjuborða. Litasamsetning mynstursins er sérlega falleg.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
41.759 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Blooming Park Dark - Rebel Walls