Montreal, Forest/Teal - Morris & Co
Montreal, Forest/Teal – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Þetta lágstemmda veggfóður sýnir persnesk, útsprungin blóm sem klifra um flötinn í klassísku Morris-mynstri. Montreal var byggð á teppi sem John Henry Dearle hannaði upp úr 1890, en hann var hægri hönd Morris.
Montreal er úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Þrífið límbletti af framhlið með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
35.914 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Alvar Aalto MIT - Boråstapeter
Kajsa, Sand - Sandberg
Terre de Lin Mint - Arte
Vinnie Misty Blue - Sandberg
Lana Toffee - Arte
Alexandra Misty Blue - Sandberg
Zulu Terrain, Heath Grey & Blush - Cole & Son
Nelson Sunset - Arte
Alcazar Gardens - Cole & Son
Cuadro Cloth - Arte
Anton, Terracotta - Sandberg
Rajapur Flock, Hyacinth Blue & White - Cole & Son
C338B loftalistahorn
Magnus Graphite - Sandberg
Dupion Beach - Arte
Kefli - Velvet Flos, 5cm
Tresse Tan - Arte
Detour Copper Pink - Arte