Mandu Cider - Arte
Mandu Cider – Arte
Á Indlandi kemur sumarið ekki hljóðlega. Það springur út með fullum krafti; heimurinn verður baðaður í gullnu ljósi, ilmandi af þroskuðum ávöxtum og hlýrri jörð, á meðan loftið glitrar af hita. Í þessu loftslagi verða þægindi að list og rétti textíllinn er meira en munaður. Hann er nauðsyn sem mýkir hitann og færir fegurð, áferð og vellíðan inn í daglegt líf. Hör hefur verið trúr förunautur í slíku loftslagi um aldir. Hann andar, kælir og er þægilegur – jafnvel í stafalogni.
Þetta látlausa veggfóður heitir Mandu, eftir hinni sögufrægu, indversku borg. Opinn vefnaðurinn hefur glæsilegt og loftkennt útlit handofins hörs. Fínlegir og óreglulegir þræðirnir undirstrika handverksblæinn. Mandu fæst í fallegum og hlýjum náttúrulitum.
Mandu er vínilveggfóður á pappírsbaki. Það er mjög þvottþolið og auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðursins eða setja límið á vegginn en þá þarf að úða bakhliðina fyrst með vatni til að gera hana raka. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
48.230 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun










