Lignes Straw - Arte
Lignes Straw – Arte
Lignes er sérlega glæsilegt veggfóður með textíláferð. Ljósari og dekkri þræðir eru samofnir til að búa til láréttar rendur. Það gefur tilfinningu fyrir dýpt. Litur: Strágulur.
Þetta veggfóður má hengja upp á tvo vegu: Annars vegar frjálst og hins vegar þannig að þræðirnir í mynstrinu passa saman þvert á veggfóðurslengjurnar á veggnum. Ef hið seinna er valið þá þarf að gera ráð fyrir því aukalega við pöntun en mynstur endurtekur sig á 91 cm fresti. Það verður því aðeins meiri afskurður með þeirri aðferð.
Lignes er vínilveggfóður á pappírsbaki. Veggfóðrið er mjög þvottþolið og auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
45.900 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Marigold, Cowslip - Morris & Co
Spartlspaði - Anza, 20cm
Erik, Spring Green - Sandberg
Hip Rose - Boråstapeter
Tropicali Linen Silver - Arte
Erik, Indigo Blue - Sandberg
Flamingos - Cole & Son
Skog Forest Green - Sandberg
Wild Tulip & Vine, Coral/Teal - Morris & Co
Nongo Warm White - Arte
Tamba Graphite - Arte
Arrow Winter Gold - Arte
Raphael Forest Midnight Blue - Sandberg
Nongo Blue Ash - Arte