Lignes Lava Stone - Arte
Lignes Lava Stone – Arte
Lignes er sérlega glæsilegt veggfóður með textíláferð. Ljósari og dekkri þræðir eru samofnir til að búa til láréttar rendur. Það gefur tilfinningu fyrir dýpt. Litur: Hraungrár.
Þetta veggfóður má hengja upp á tvo vegu: Annars vegar frjálst og hins vegar þannig að þræðirnir í mynstrinu passa saman þvert á veggfóðurslengjurnar á veggnum. Ef hið seinna er valið þá þarf að gera ráð fyrir því aukalega við pöntun en mynstur endurtekur sig á 91 cm fresti. Það verður því aðeins meiri afskurður með þeirri aðferð.
Lignes er vínilveggfóður á pappírsbaki. Veggfóðrið er mjög þvottþolið og auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
45.900 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Campo Sandstone - Arte
Dried Bouquet, Light - Rebel Walls
Flower Thread Blue - Rebel Walls
Eden, Nightfall - Rebel Walls
Vintage Garden Ivory - Rebel Walls
Bastoni Cream - Cole & Son
Chanderi Urban - Arte
Mystery Lake Vintage - Rebel Walls
Eri Violet Gold - Arte
Celeste, Red - Sandberg