Lent Lily, Plum/Bayleaf - Morris & Co
Lent Lily, Plum/Bayleaf – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun fyrir almenning (fremur en aðalinn), með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau stílnum í byggingar-, nytja- og málaralist á 20. öld. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag, enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Morris & Co. X The Huntington – The Unfinished Works, er einstök hönnunarlína sem byggir á skissum William Morris og listræns stjórnanda hans, John Henry Dearle. Þessi mynstur hafa nú verið endurlífguð og fullgerð í samstarfi við Huntington Library, Art Museum og Botanical Gardens í Kaliforníu.
Veggfóðrið Lent Lily er sjaldséð vatnslitaverk úr fórum Morris & Co en við fullvinnslu þess var haldið af vandvirkni í upprunalegu, handteiknuðu hreyfinguna. Stílhreinir, oddhvassir túlípanar standa djarfir í andstæðu við dansandi súlublómalaufið, sem er dæmigert fyrir Morris. Nafnið Lent Lily vísar til litlu, villtu páskaliljanna sem kúra sig niður við jörð á þessari ástúðlega aðlöguðu hönnun.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
41.759 kr.
Í boði sem biðpöntun































Pússklossi - Friess, 122x70mm
Lin Normandie Hotchips - Arte
Palm Leaf - Boråstapeter
Fig Garden Garden Green - Sandberg
Flamingos - Cole & Son
Sergé Muscade - Arte
Bellewood, Grey Toile - Rebel Walls
Chrysanthemum, Pink/Yellow/Green - Morris & Co
SX173 gólflisti
Ardmore Cameos, Olive Green - Cole & Son
Emery’s Willow Chrysanthemum Pink - Morris & Co
Campo Olive - Arte
Pompeian - Cole & Son
Dagmar - Boråstapeter
Facet Pure Gold - Arte
Woods, Parchment - Cole & Son