fbpx

Hornahlíf fyrir veggfóður - Arte

2.767 kr.

Hornahlíf fyrir veggfóður – Arte

Profilo Corner Guards

Hornahlífin er ætluð til að styrkja og ramma inn bein úthorn, en kemur líka vel út á bogaúthornum (sjá aðferð í myndbandi). Hlífin er höggþolin, upplitast ekki og má mála í þeim lit sem passar veggfóðrinu. Hlífin er eldtefjandi og sjálfslökkvandi með þýskum brunastuðli d B1 (DIN 4102). Auðvelt er að líma hornahlífina á vegginn en hún er stillanleg frá 90° til 180°. Þegar veggfóðrið er fjarlægt helst hlífin á sínum stað og má endurnýta án vandræða. Stærð: 1 hornahlíf = 2,60 m upprúlluð.

Leiðbeiningar og myndband:

  • Tryggðu að hornahlífin sé við stofuhita svo hún haldist sveigjanleg þegar þú hefst handa
  • Brjóttu hlífina í æskilegt horn og klipptu hana til. Ef staðallengdin 2,60 m er ekki næg er auðvelt að bæta við hluta af annarri hornahlíf
  • Límdu hlífina á hreint yfirborð með lími, t.d. Orac DecoFix Pro
  • Jafnaðu út hæðarmismun milli hlífar og veggjar með spartli
  • Málaðu hlífina í lit sem passar við veggfóðrið, með málningu sem hentar fyrir PVC
  • Límdu veggfóðrið við upphækkaða hluta hlífarinnar og skerðu burt umfram veggfóður

Myndband

2.767 kr.

18 til á lager.
Vörunúmer: PROFIL20 Vöruflokkar: , ,

Shopping cart

0
image/svg+xml

No products in the cart.

Continue Shopping