Glowing Patina Chocolate - Arte
Glowing Patina Chocolate – Arte
Veggklæðningarnar í Boutique-línunni endurspegla japanskan glæsileika frá því um miðja síðustu öld. Eftir síðari heimsstyrjöldina upplifði Japan gífurlegan efnahagsvöxt sem leiddi til umbreytinga sem einkenndust af bjartsýni og framsækinni hugsun. Í innanhússhönnun birtist þessi vonarstemning í nýjum, að mestu glansandi efnum og glæsilegum mynstrum – sem gnægð er af í Boutique veggfóðurslínunni.
Glowing Patina er einkar glæsilegt veggfóður í hlýjum og ríkulegum gull- og silfurgljáa. Veðruð áferðin vísar til fortíðar en þessi sögulegi „vintage“ blær gerir veggfóðrið að fullkomnu vali fyrir þá sem vilja fá klassískan sjarma og fágun á heimilið.
Glowing Patina veggfóðrið er gert úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
Leiðbeiningar fyrir veggfóður með non-woven bakhlið
12.947 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun
