Galon Spiced Pumpkin - Arte
Galon Spiced Pumpkin – Arte
Allures-línan er hylling til franska „savoir vivre“ lífsstílsins á nítjándu öld þegar mikilvægast þótti að hegða sér og lifa á fágaðan hátt. Í innanhússhönnun voru klassísk mynstur endurhönnuð með nútímalegri blæ þar sem smekkvísi og verkkunnátta sameinast í vönduðum efnum, nákvæmu handverki og afburða fallegum frágangi.
Galon sækir innblástur í áklæði franskra antíksófa, sem oft voru skreyttir fallegum tvílita röndum. Þetta mynstur er endurtúlkað hér í flauelsefni með íofnu mynstri (fr. jacquard), sem glitrar á með fáguðum ljóma. Nafnið vísar til franska „galon“ skrautbandsins sem hefð var fyrir að nota til að draga fram fegurð íburðarmikilla textílefna. Ath. Flauelsveggfóður hafa náttúrulegt flos. Til að varðveita fallega áferðina skal forðast að beita miklum þrýstingi á móti þeirri átt sem floshárin leggjast.
Galon veggfóðrið er ofinn textíll með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
Leiðbeiningar fyrir veggfóður úr náttúrulegum efnum og textíl á non-woven bakhlið
48.800 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun
