Galon Grey Linen - Arte

48.800 kr. lengdarmetraverð

Galon Grey Linen – Arte

Allures-línan er hylling til franska „savoir vivre“ lífsstílsins á nítjándu öld þegar mikilvægast þótti að hegða sér og lifa á fágaðan hátt. Í innanhússhönnun voru klassísk mynstur endurhönnuð með nútímalegri blæ þar sem smekkvísi og verkkunnátta sameinast í vönduðum efnum, nákvæmu handverki og afburða fallegum frágangi.

Galon sækir innblástur í áklæði franskra antíksófa, sem oft voru skreyttir fallegum tvílita röndum. Þetta mynstur er endurtúlkað hér í flauelsefni með íofnu mynstri (fr. jacquard), sem glitrar á með fáguðum ljóma. Nafnið vísar til franska „galon“ skrautbandsins sem hefð var fyrir að nota til að draga fram fegurð íburðarmikilla textílefna. Ath. Flauelsveggfóður hafa náttúrulegt flos. Til að varðveita fallega áferðina skal forðast að beita miklum þrýstingi á móti þeirri átt sem floshárin leggjast.

Galon veggfóðrið er ofinn textíll með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.

Leiðbeiningar fyrir veggfóður úr náttúrulegum efnum og textíl á non-woven bakhlið

48.800 kr. lengdarmetraverð

Í boði sem biðpöntun

Rúllubreidd: 131 cm
Áætla fjölda lengdarmetra
m
m
cm
cm
Niðurstöður

Endilega stimplið tölur í reiknivélina 2.1 sem verða 3 rúllur
Heildarverð:

SÉRPÖNTUN - EKKI SKILAVARA: Reiknivélin metur u.þ.b. það magn af veggfóðri sem þú þarfnast miðað við þínar mælingar. Sérefni taka ekki ábyrgð á ofáætlun eða skorti á veggfóðursmagni á grundvelli þessara útreikninga þar sem of margir þættir geta spilað inn í efnisþörf. Þar má nefna ónákvæmar mælingar, dyr, glugga, mynsturgerð, mistök í uppsetningu og fleira. Ef flókið er að finna út magn mælum við með að ráðfæra sig við fagmann áður en pantað er.

Vörunúmer: 29221 Vöruflokkar: , , Stikkorð: , ,

Tengdar vörur

Karfa

0
image/svg+xml

No products in the cart.

Halda áfram að versla