Ferox Denim - Arte
Ferox Denim – Arte
Veggfóðursframleiðandinn Arte hefur alltaf haft ástríðu fyrir óvenjulegum efnum þar sem hönnuðir vörumerkisins skapa framúrskarandi veggfóður úr margs konar einstökum efnum víðs vegar að úr heiminum. Veggfóður úr náttúrulegum efnum er uppistaðan í hönnunarlínum Arte. Raffía, sísal, gljásteinn og bananabörkur eru aðeins nokkur af þeim töfrandi náttúruefnum sem notuð eru í ótrúlega fjölbreytt úrval Arte af veggfóðri. Ferox línan er einmitt gerð sem virðingarvottur við fegurð náttúruefnanna.
Ferox veggfóðrið dregur nafn sitt af latneska orðinu „ferus“ sem þýðir „villtur“. Vegna litaandstæðnanna mynda grófofnir þræðirnir lítil rúmfræðileg mótíf sem eru hlutlaus og náttúruleg viðkomu.
Ferox er handgert, náttúrulegt veggfóður úr grófofnum pappírsþræði. Það er með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn en úðið bakhlið veggfóðursins fyrst með vatni. Strjúka má af veggfóðrinu með rökum klút. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
8.332 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun














Temper Emerald - Arte
Marigold, Wedgwood - Morris & Co
Dupion Umber - Arte
Terre de Lin Central Court - Arte
Vanilla Linen - Boråstapeter
Vintage Rose - Boråstapeter
Secret Garden, Sage on Chalk - Cole & Son
Whales in the Sky - Boråstapeter
Pine, Black - Sandberg