Étamine Clay - Arte
Étamine Clay – Arte
Allures-línan er hylling til franska „savoir vivre“ lífsstílsins á nítjándu öld þegar mikilvægast þótti að hegða sér og lifa á fágaðan hátt. Í innanhússhönnun voru klassísk mynstur endurhönnuð með nútímalegri blæ þar sem smekkvísi og verkkunnátta sameinast í vönduðum efnum, nákvæmu handverki og afburða fallegum frágangi.
Hið látlausa Étamine veggfóður er ekta textílefni sem einkennist af opnum, léttum vefnaði sem skapar náttúrulegt, rústík yfirbragð. Litapallettan er samsafn af hlýlegum, jarðbundnum tónum sem passar fullkomlega við hin mynstrin í Allures-línunni.
Étamine veggfóðrið er ofinn textíll með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
Leiðbeiningar fyrir veggfóður úr náttúrulegum efnum og textíl á non-woven bakhlið
26.300 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun
