Étamine Blush - Arte

26.300 kr. lengdarmetraverð

Étamine Blush – Arte

Allures-línan er hylling til franska „savoir vivre“ lífsstílsins á nítjándu öld þegar mikilvægast þótti að hegða sér og lifa á fágaðan hátt. Í innanhússhönnun voru klassísk mynstur endurhönnuð með nútímalegri blæ þar sem smekkvísi og verkkunnátta sameinast í vönduðum efnum, nákvæmu handverki og afburða fallegum frágangi.

Hið látlausa Étamine veggfóður er ekta textílefni sem einkennist af opnum, léttum vefnaði sem skapar náttúrulegt, rústík yfirbragð. Litapallettan er samsafn af hlýlegum, jarðbundnum tónum sem passar fullkomlega við hin mynstrin í Allures-línunni.

Étamine veggfóðrið er ofinn textíll með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.

Leiðbeiningar fyrir veggfóður úr náttúrulegum efnum og textíl á non-woven bakhlið

26.300 kr. lengdarmetraverð

Í boði sem biðpöntun

Rúllubreidd: 115 cm
Áætla fjölda lengdarmetra
m
m
cm
cm
Niðurstöður

Endilega stimplið tölur í reiknivélina 2.1 sem verða 3 rúllur
Heildarverð:

SÉRPÖNTUN - EKKI SKILAVARA: Reiknivélin metur u.þ.b. það magn af veggfóðri sem þú þarfnast miðað við þínar mælingar. Sérefni taka ekki ábyrgð á ofáætlun eða skorti á veggfóðursmagni á grundvelli þessara útreikninga þar sem of margir þættir geta spilað inn í efnisþörf. Þar má nefna ónákvæmar mælingar, dyr, glugga, mynsturgerð, mistök í uppsetningu og fleira. Ef flókið er að finna út magn mælum við með að ráðfæra sig við fagmann áður en pantað er.

Vörunúmer: 29253 Vöruflokkar: , , Stikkorð: , ,

Tengdar vörur

Karfa

0
image/svg+xml

No products in the cart.

Halda áfram að versla