Eri Violet Gold - Arte
Eri Violet Gold – Arte
Eri gerir hvern vegg einstakan því áferðin er hreinn lúxus. Mynstrið er innblásið af opnum vefnaði silkis og er settur á málmgljáandi bakgrunn. Hlýr ljómi góðmálmsins skín í gegnum fíngerða möskva efnisins sem gerir vefnaðinn meira áberandi og fallegan. Eri kemur í 8 litum. Þessi útgáfa er í fjólubláum og gylltum tónum.
Þetta veggfóður má hengja upp á tvo vegu: Annars vegar frjálst og hins vegar þannig að þræðirnir í mynstrinu passa saman þvert á veggfóðurslengjurnar á veggnum. Ef hið seinna er valið þá þarf að gera ráð fyrir því aukalega við pöntun en mynstur endurtekur sig á 90 cm fresti. Það verður því aðeins meiri afskurður með þeirri aðferð.
Alma er vínilveggfóður með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
91.500 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Verdure Winter Garden - Arte
Melville, Seafoam & Metallic Gliver - Cole & Son
Mediterranea Charcoal & Metallics - Cole & Son
Ovillo Stone - Arte
Ivy, Green - Sandberg
Picnic Check - Boråstapeter
Simply Strawberry Thief Slate/Vellum - Morris & Co
Nelson Soft Eucalyptus - Arte
Nuvolette, Black & White - Cole & Son (2 rúllur)
Tana Juniper - Arte
Paneling - Boråstapeter
Jon Olive Green - Sandberg
Tela Forest Grey - Arte
Arne Jacobsen Kejsarkrona - Boråstapeter
Eri Pearl - Arte