Eri Antique Silver - Arte
Eri Antique Silver – Arte
Eri gerir hvern vegg einstakan því áferðin er hreinn lúxus. Mynstrið er innblásið af opnum vefnaði silkis og er settur á málmgljáandi bakgrunn. Hlýr ljómi góðmálmsins skín í gegnum fíngerða möskva efnisins sem gerir vefnaðinn meira áberandi og fallegan. Eri kemur í 8 litum. Þessi útgáfa er í grábrúnum lit.
Þetta veggfóður má hengja upp á tvo vegu: Annars vegar frjálst og hins vegar þannig að þræðirnir í mynstrinu passa saman þvert á veggfóðurslengjurnar á veggnum. Ef hið seinna er valið þá þarf að gera ráð fyrir því aukalega við pöntun en mynstur endurtekur sig á 90 cm fresti. Það verður því aðeins meiri afskurður með þeirri aðferð.
Alma er vínilveggfóður með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
91.500 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Symbol Sand - Arte
Sabal Golden Forest - Arte
Ardmore Cameos, Olive Green - Cole & Son
Granville Bottle Green - Arte
Hicks' Grand - Cole & Son
Camellia, Coral & Duck Egg on Eau du Nil - Cole & Son
Chanderi Pimento - Arte
Star Maps - Rebel Walls
Kefli - Velvet Flos, 5cm
Cocktails Pastel - Cole & Son
Emilia Ilke, Clay - Sandberg
Bamboo Grove, Dark Green - Sandberg
Corteza 34201 - Arte
Ebba, Charcoal - Sandberg
Zen Mural, Graphite - Sandberg
Flora - Boråstapeter
Alvar Aalto MIT - Boråstapeter
Nelson Chilli - Arte
Carmen, Dark Taupe - Cole & Son
P8020 vegglisti
Camago Smoke - Arte
Alma Espresso - Arte