Éclosion Sand - Arte
Éclosion Sand – Arte
Allures-línan er hylling til franska „savoir vivre“ lífsstílsins á nítjándu öld þegar mikilvægast þótti að hegða sér og lifa á fágaðan hátt. Í innanhússhönnun voru klassísk mynstur endurhönnuð með nútímalegri blæ þar sem smekkvísi og verkkunnátta sameinast í vönduðum efnum, nákvæmu handverki og afburða fallegum frágangi.
Éclosion býður upp á gróskumikið blómamynstur, handsaumað á bómullargrunn. Innan um fagurmótuð laufblöðin eru glæsileg blómstrandi blóm en form þeirra eru frágengin með fíngerðum frönskum hnútum. Nafnið á veggklæðningunni vísar til þeirrar ljóðrænu stundar þegar knúppur opnar sig; tákn um birtingu fegurðar.
Éclosion veggfóðrið er textíll með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
77.130 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun
