Drift Dew - Arte
Drift Dew – Arte
Veggfóðursframleiðandinn Arte hefur alltaf haft ástríðu fyrir óvenjulegum efnum þar sem hönnuðir vörumerkisins skapa framúrskarandi veggfóður úr margs konar einstökum efnum víðs vegar að úr heiminum. Veggfóður úr náttúrulegum efnum er uppistaðan í hönnunarlínum Arte. Raffía, sísal, gljásteinn og bananabörkur eru aðeins nokkur af þeim töfrandi náttúruefnum sem notuð eru í ótrúlega fjölbreytt úrval Arte af veggfóðri. Drift línan er einmitt gerð sem virðingarvottur við fegurð náttúruefnanna.
Drift veggfóðrið eru úr náttúrulegum sísaltrefjum sem eru afar fínt ofnar saman í vef. Þá er vefurinn lagður í fellingar með höndunum. Að lokum er málmblek borið efst á fellingarnar. Þessi tækni skilar lifandi og algerlega einstakri veggklæðningu, með miklum karakter.
Drift er handgert, náttúrulegt veggfóður úr sísaltrefjum. Það er með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn en úðið bakhlið veggfóðursins fyrst með vatni. Strjúka má af veggfóðrinu með rökum klút. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
11.640 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun












C323 ljósa- og loftalisti
Picnic Check - Boråstapeter
Lise, Forest Green - Sandberg
Arch - Boråstapeter
Temper Navy Blue - Arte
Savuti, Soot on Charcoal - Cole & Son
Meadow, Soot - Cole & Son
Birk - Boråstapeter
Värmdö - Boråstapeter
SX187 gólf- og loftalisti
Canvas Taupe - Boråstapeter
Casalian Tobacco - Arte