Canyon Denim - Arte
Canyon Denim – Arte
Veggklæðningarnar í Boutique-línunni endurspegla japanskan glæsileika frá því um miðja síðustu öld. Eftir síðari heimsstyrjöldina upplifði Japan gífurlegan efnahagsvöxt sem leiddi til umbreytinga sem einkenndust af bjartsýni og framsækinni hugsun. Í innanhússhönnun birtist þessi vonarstemning í nýjum, að mestu glansandi efnum og glæsilegum mynstrum – sem gnægð er af í Boutique veggfóðurslínunni.
Þetta einfalda veggfóður, Canyon, er abstrakt framsetning á gljúfri – þröngum, djúpum dal sem áin sker í gegnum steininn. Mismunandi litir og glansandi berglög ásamt grófum útlínum minna á ólíkar gerðir bergs í gljúfri.
Canyon er gert úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
10.181 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun

