Canvas Lavender - Arte
Canvas Lavender – Arte
Canvas er innblásið af áferð hörs á fallegan og tímalausan hátt. Ofið mynstrið og einstaklega mött áferðin sýnir greinilega einkennandi uppbyggingu ekta hörvefnaðar. Canvas kemur í 12 náttúrulitum. Þessi útgáfa er í fjóluðum lit.
Þetta veggfóður má hengja upp á tvo vegu: Annars vegar frjálst og hins vegar þannig að þræðirnir í mynstrinu passa saman þvert á veggfóðurslengjurnar á veggnum. Ef hið seinna er valið þá þarf að gera ráð fyrir því aukalega við pöntun en mynstur endurtekur sig á 90 cm fresti. Það verður því aðeins meiri afskurður með þeirri aðferð.
Canvas er vínilveggfóður á pappírsbaki. Veggfóðrið er mjög þvottþolið og auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
45.900 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Monica Misty Blue - Sandberg
Hræra fyrir borvél - Mako, 80mm
Acacia, Soot & Snow on Parchment - Cole & Son
Procuratie Con Vista Soot & Snow - Cole & Son
Under the Elder Tree - Boråstapeter
Marsh Blue Ash - Arte
Chiavi Segrete Slate Blue & Grey - Cole & Son
Lin Murano - Arte
Mystery Lake Blue - Rebel Walls
Rajapur Flock, Hyacinth Blue & White - Cole & Son
Belinda Pastel - Sandberg
Waffle Weave Taupe - Arte
Aino, Indigo Blue - Sandberg
Madagascar - Boråstapeter
Swanlake - Boråstapeter
Vintage Palms - Boråstapeter