Cabochon Mink - Arte
Cabochon Mink – Arte
Allures-línan er hylling til franska „savoir vivre“ lífsstílsins á nítjándu öld þegar mikilvægast þótti að hegða sér og lifa á fágaðan hátt. Í innanhússhönnun voru klassísk mynstur endurhönnuð með nútímalegri blæ þar sem smekkvísi og verkkunnátta sameinast í vönduðum efnum, nákvæmu handverki og afburða fallegum frágangi.
Cabochon sækir innblástur í franska húsgagnahefð. Hönnunin einkennist af snyrtilega uppröðuðu mynstri úr flauelsferningum; hver og einn er rammaður inn af fínum hnöppum. Hringformin minna á skreytinagla – eða cabochons – sem eitt sinn voru notaðir til að festa niður áklæði með glæsilegum hætti. Ath. Flauelsveggfóður hafa náttúrulegt flos. Til að varðveita fallega áferðina skal forðast að beita miklum þrýstingi á móti þeirri átt sem floshárin leggjast.
Cabochon veggfóðrið er textíll með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
48.800 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun
