
Pólýúretan lakk 5%
Pólýúretan lakk 5%
Ambiance Superfinish Matt
Ambiance Superfinish Matt er almatt, vatnsþynnanlegt pólýúretan akrýllakk, með sérlega góðu floti. Lakkið er ætlað til málunar á eldhúskápum, húsgögnum, hurðum, körmum, sökklum, listum o.fl. Það hentar einnig vel á ryðvarðar plötur og stálhluti innanhúss. Ambiance Superfinish Matt hefur djúpa og dempaða áferð sem dregur fram litinn á afar fallegan hátt. Það þekur vel og myndar mjög slitsterka og þvottheldna málningarfilmu sem gulnar ekki með tímanum. Lakkið er þekkt fyrir að þýðast óvanar hendur.
Vöruflokkar: Lituð lökk og bæs, Málað innanhúss, Málning fyrir hús