
Ambiance Superfinish Satin er hágæða vatnsþynnanlegt akrýllakk, styrkt með pólýúretan. Lakkið hefur einstaklega fallega silkimatta áferð og er ætlað til málunar á eldhúskápum, hurðum, körmum, sökklum, listum o.fl. Það hentar einnig vel á ryðvarðar plötur og stálhluti innanhúss. Ambiance Superfinish Satin hefur afar gott flot, þekur vel og myndar mjög slitsterka og þvottheldna málningarfilmu sem gulnar ekki með tímanum.
Hafa samband
Sími (354) 5170404
Dalvegur 32b, 201 Kópavogur
Austursíðu 2, 603 Akureyri