Agave Olive - Arte
Agave Olive – Arte
Veggfóðursframleiðandinn Arte hefur alltaf haft ástríðu fyrir óvenjulegum efnum þar sem hönnuðir vörumerkisins skapa framúrskarandi veggfóður úr margs konar einstökum efnum víðs vegar að úr heiminum. Veggfóður úr náttúrulegum efnum er uppistaðan í hönnunarlínum Arte. Raffía, sísal, gljásteinn og bananabörkur eru aðeins nokkur af þeim töfrandi náttúruefnum sem notuð eru í ótrúlega fjölbreytt úrval Arte af veggfóðri. Agave veggfóðrið er einmitt hannað sem virðingarvottur við fegurð náttúruefnanna.
Agave veggfóðrið er handgert úr sísaltrefjum sem hafa verið mótaðar í sterkbyggt textílgarn. Ræktun agave sisalana plöntunnar, sem trefjarnar eru unnar úr, fer fyrst og fremst fram í norðausturhluta Brasilíu.
Agave er handgert, náttúrulegt veggfóður. Bakið er úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn en úðið bakhlið veggfóðursins fyrst með vatni. Strjúka má af veggfóðrinu með rökum klút. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
10.181 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun











Limestone - Boråstapeter
Simon, Charcoal - Sandberg
Tree Canopy - Boråstapeter
Lykke Mineral Grey - Sandberg
Lise, Forest Green - Sandberg
Granville Chalk - Arte
Jasmine, Garden Green - Sandberg
Hicks' Grand - Cole & Son
Geo - Boråstapeter
Lilla Lyckan - Boråstapeter
Cliff Castle - Rebel Walls
Stravinsky, Metallic Bronze - Cole & Son
Eri Violet Gold - Arte
Waffle Weave Warm Grey - Arte
Nocturne - Boråstapeter
Éclat Smoke - Arte