Að mála timburhús
með ONE Transparent hálfþekjandi nanóakrýl
Aðferð
Undirlag skal vera hreint og þurrt (mest 16% raki í viði). Ætíð skal bera á viðinn endilangt og forðast þannig að búa til færsluskil, þ.e. aukalitstyrk á miðju borði. Þetta á bæði við um nýmálun og endurmálun. Þegar litstyrkurinn er orðinn nægilegur skal nota efnið með minni litstyrk eða glært.
Nýmálun
- Slípið og opnið heflaðan við með sandpappír, t.d. nr. 100. Gegndreypið alla fleti sem mála skal með Tinova Wood Base Oil og þá sérlega vel gljúpa fleti eins og endatré.
- Málið yfir 2 umferðir af ONE Transparent.
- Á lítið hallandi flöt og þar sem veðurálag er mikið skal bera aukaumferð.
Endurmálun
- Þvoið allan flötinn með Original Målartvätt og vatni. Blandið Målartvätt með allt að 20 hlutum vatns móti 1 hlut hreinsiefnisins. Fyrir mjög óhreina fleti skal blanda vatni í hlutfallinu 10:1. Berið blönduna á með svampi eða bursta. Látið blönduna liggja á fletinum í nokkrar mínútur og skrúbbið af með blautri tusku eða bursta og vatni. Ef á fletinum er mygla, mold eða annar gróður skal þvo flötinn með þörunga- og mygluhreinsi. Skolið vel eftir á með vatni. Látið flötinn þorna vel áður en málað er.
- Fjarlægið gamla og lausa málningu. Slípið gljáandi fleti matta með sandpappír til að tryggja góða viðloðun. Fúa eða gráma í tré skal pússa niður eða fjarlægja með grámahreinsinum Tinova Wood Cleaner uns komið er í eðlilegan viðarlit. Eftir meðferð með grámahreinsi þarf viðurinn að þorna vel í 1-3 daga.
- Beran við skal gegndreypa með Tinova Wood Base Oil.
- Málið yfir 2 umferðir af ONE Transparent.
- Á lítið hallandi feti og þar sem veðurálag er mikið skal bera aukaumferð.
Annað
Hrærið vel í dósinni fyrir notkun. Málið ekki ef sól skín beint á flötinn eða ef hætta er á regni eða daggarmyndun innan fárra klukkustunda eftir lok verks.
*Nákvæmari upplýsingar um efnin má finna í tækniblöðum.
Heilsufars- og umhverfismál
Ekki láta málningardósina standa opna meðan á verki stendur. Þrífið verkfæri strax eftir notkun. Athugið að kviknað getur í olíublautum tuskum og tvisti af sjálfu sér og verður að bleyta þær með vatni áður en þeim er hent á öruggan stað. Hellið ekki málningar- og hreinsiefnaleifum í niðurföll. Skilið efnaleifum og tómum umbúðum til endurvinnslustöðva.
Tæknilegar upplýsingar
Til notkunar: Utanhúss
Bindiefni í ONE Transparent: Akrýl-alkýð
Gljástig: Hálfmatt
Yfirmálun: Wood Base Oil 24 klst; ONE Transparent 6 klst
Hiti við málun: Minnst +5°C, mest +25°C
Rakastig: 40-80%
Þynning: Vatn, mest 10%
Verkfæri: Penslar, rúllur, sprautur
Þekja: Wood Base Oil 4,5-5,5 m2/l; ONE Transparent í nýmálun 6-8 m2/l en endurmálun 8-10 m2/l
Hreinsun: Vatn
Geymsla: Í frostfríu rými