fbpx

Að kalkmála veggi

Að kalkmála veggi

Fyrst þetta

Það er engin rétt eða röng áferð á kalkvegg. Útkoman getur orðið mismunandi eftir litum þegar unnið er með náttúruefni, t.d. sjást pensilförin meira í dýpri litum. Málun þarf síðan ekkert endilega að vera lokið að fullu eftir tvær umferðir. Algengt er að menn taki strokur hér og þar til að ná fram rétta útlitinu, jafnvel nokkrum sinnum á mismunandi tímum. Málið er bara að vera afslappaður og skapandi þar til maður er ánægður.

 

Grunnað
Áður en flötur er málaður með kalkmálningu þarf ætíð að grunn með sérstökum kalkgrunni. Þetta er gert til að kalkmálningin loði betur við og auðveldara sé að bera hana á flötinn. Kalkgrunnurinn er borinn á með rúllu eða pensli og má draga vel úr honum. Við nýmálun á spartl verður að metta spartlið með grunninum og er þá efnisnotkun meiri. Ekki þarf að grunna ef mála á ómeðhöndlaðan stein eða kalkmálaðan flöt.

 

Kalkmálað

  1. Breiðið vel undir flötinn því hætt er við að efni slettist við kalkmálun.
  2. Forðist að skera sérstaklega að ómáluðum fleti því það gefur ólíka áferð. Notið málningarlímband og vinnið kalkið beint út frá því.
  3. Kalkmálningin er borin á með stórum pensli eða þar til gerðum kalkpensli. Málið upp og niður eða takið flötinn langsum í stuttum eða löngum strokum (t.d. 60-100 cm). Einnig má krossa flötinn á handahófskenndan hátt; allt eftir því hvaða áferð verið er að sækjast eftir. Þrýstingur á pensilinn skiptir máli því ólík áferð fæst með léttum strokum og þéttum. Þynna má kalkmálningu til að léttara sé að bera hana á (allt að 50%). Dökk kalkmálning er yfirleitt svolítið þykkari en ljós vegna hærra hlutfalls litarefna. Mikilvægt er að mála allan flötinn í einu; ekki stoppa fyrr en hann hefur allur verið málaður.

 

Lakkvörn
Á álagsflötum svo sem í forstofu, eldhúsi eða húsgögnum má verja kalkmálninguna með matta lakkinu 1KPU. Flöturinn heldur ágætlega lit og dýpt við það. Gott er að prófa sig aðeins áfram á lítt áberandi svæði áður en ráðist er í allt verkið. Kalkið þarf að fá að þorna í að minnsta kosti fimm daga áður en það er lakkað. Nokkur ráð um lökkun:

  • Kalkmálning þarf að hafa þornað í 5-7 daga áður en lakkað er yfir
  • Penslið lakkinu í sömu átt og kalkið var sett á til að koma í veg fyrir færsluskil
  • Berið efnið jafnt á flötinn og takið ekki hlé fyrr en að loknu verki

 

Málað yfir kalkmálningu

Það er lítið mál að breyta yfir í plastmálningu seinna meir. Ef kalkmálningin er grófmáluð eða laus í sér skal pússa þá fleti með sandpappír nr. 220 og grunna síðan yfir með Professional Microdispers bindigrunni frá Nordsjö – það er mjög fljótlegt. Þá er flöturinn tilbúinn undir „venjulega“ innimálningu. Hið sama gildir ef yfirborðið er vaxvarið – en þá þarf grófari sandpappír, t.d. nr. 80-100.

 

Að fjarlægja bletti

Ef heit fita slettist á kalkmálningu geta myndast dökkir blettir. Ef hún er ekki þrifin strax af er best að skrapa blettinn varlega með hníf eða pússa yfir með sandpappír. Blettið síðan með kalkgrunni áður kalkmálning er borin á blettinn með mjög fínum pensli. Þegar málningin er þornuð er gott að fara laust yfir blettinn og svæðið í kring með þurri eða örlítið rakri tusku þannig að skil máist. Sömu aðferð má nota ef höggfar hefur myndast.

 

* Nákvæmari upplýsingar um efnin má finna í tækniblöðum.

Tæknilegar upplýsingar

Til notkunar: Innanhúss

Þynning: Vatn; fer eftir litum. Ljósir litir eru lítið eða ekkert þynntir, dökkir 10-50%

Verkfæri: Breiður og grófur pensill

Þurrktími: Kalkgrunnur 2 klst; kalkmálning 2 klst

Yfirmálun: Kalkgrunnur 4 klst; kalkmálning 12 klst

Þekja: Kalkgrunnur 12-14 m2/l; kalkmálning  6-8 m2/l

Hreinsun: Vatn

Fleiri blogg

Nýmálað á Nönnustíg

Húsið við Nönnustíg á stutt í áttræðisafmælið. Þrátt fyrir það er húsið einstaklega glæsilegt eftir viðgerðir og málun í sumar.

Karfa

0
image/svg+xml

No products in the cart.

Continue Shopping