Greenhouse Gathering Window, Architectural White - Arte
Greenhouse Gathering Window, Architectural White – Arte
Green House veggfóðurslínan frá Moooi er sláandi falleg í sínum hljóðláta og fágaða glæsileika. Andrúmsloftið minnir á sólstofur frá Viktoríutímanum. Saman skapa mynstrin undursamlegan heim þar sem þrívíddarhönnunin býr til áþreifanlega upplifun. Línan er unnin úr hágæðaefnum, með áferð viðarspóns, silki, jacquard og bouclé.
Greenhouse Gathering Window er töfrandi veggfóður sem sækir innblástur í skrautmótagerð. Hönnunin líkir eftir tilfinningunni þegar skyggnst er í gegnum rúður gróðurhúss á gróskuna innan við. Mynstrið er undir áhrifum Art Deco og minnir einlit pallettan á verk úr gifsi. Veggfóðrið hefur mjúkt rúskinnsútlit sem gerir það áþreifanlegra.
Greenhouse Gathering Window veggfóðrið kemur í lengjum 120 cm x 300 cm = 3.60 m2. Endurtaka má mynstrið til hliðar til að fá fleiri þiljur á vegginn. Einnig má setja það saman með Greenhouse Gathering Arch bogaþiljunni.
Greenhouse Gathering Window veggfóðrið er textíll með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven). Það þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Má þrífa með rökum klút eða svampi. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
72.379 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun

Flamingos, Blush & Cerise on White - Cole & Son
Infini Mushroom - Arte
Terre de Lin Dulce - Arte
Shimmer Ash - Arte
Zulu Border, Linen & Black - Cole & Son
Lignes Olive - Arte
DecoFix Ultra samskeytalím fyrir lista
Musa Silver - Arte
Myrten - Boråstapeter
Musa Off-White - Arte
Motas Stone - Arte
Atlas Fjord - Arte
Balance - Rebel Walls