fbpx

Woodblock Beetle Fern, Ebony - Arte

24.831 kr. lengdarmetraverð

Woodblock Beetle Fern, Ebony – Arte

Green House veggfóðurslínan frá Moooi er sláandi falleg í sínum hljóðláta og fágaða glæsileika. Andrúmsloftið minnir á sólstofur frá Viktoríutímanum. Saman skapa mynstrin undursamlegan heim þar sem þrívíddarhönnunin býr til áþreifanlega upplifun. Línan er unnin úr hágæðaefnum, með áferð viðarspóns, silki, jacquard og bouclé vefnaðar.

Woodblock Beetle Fern veggfóðrið er handunnið og spónlagt úr náttúrulegum eðalvið. Mynstrið er gert úr hliðstæðum viðartónum og er vandlega raðað upp í tvær áttir, sem skapar fínlega blöndu tóna sem minna á klassíska útskurðarlist.

Woodblock Beetle Fern veggfóðrið er úr náttúrulegum spónvið með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven). Það þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að gera bakið rakt áður en veggfóðrið er límt upp – límið er sett á vegginn. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með svampi við upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.

Leiðbeiningar fyrir veggfóður úr náttúruefnum

24.831 kr. lengdarmetraverð

Í boði sem biðpöntun

Rúllubreidd: 91.44 cmMynsturhæð: 46 cm

Tengdar vörur

Karfa

0
image/svg+xml

No products in the cart.

Continue Shopping