fbpx

Curve Beach - Arte

53.296 kr. lengdarmetraverð

Curve Beach – Arte

Curve er ofið textílefni með vott af gamaldags yfirbragði en þannig efni voru einmitt afar vinsæl um miðbik 20. aldar í textíliðnaði og hjá frægum tískuhúsum, t.d. Chanel. Slík vinnsla á efnum er yfirleitt nefnd „bouclé“ sem þýðir eiginlega „hrokkinn“, en það eins og misþykkt, krullað garnið standi svolítið upp úr efninu hér og þar og myndar notalega, grófofna áferð. Við sjáum svona vefnað mikið í bólsturefnum sófa og hægindastóla í dag. Curve mynstrið sjálft er byggt upp af mjúkum hálfhringum sem eru umluktir ferningum. Þetta veggfóður hefur töluvert verið notað á rúmgafla. Litur: Drappaður.

Curve textílefnið er lagt ofan á misþykkan svamp og gefur því skemmtileg þrívíddaráhrif. Í leiðinni nást jákvæð hljóðvistaráhrif. Veggfóðrið er með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið beint á vegginn. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með svampi við upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. ATH. Þetta veggfóður er selt í lengdarmetrum, ekki stöðluðum rúllum.

Leiðbeiningar fyrir veggfóður með non-woven bakhlið

53.296 kr. lengdarmetraverð

Rúllubreidd: 123 cmMynsturhæð: 88 cm
Áætla fjölda lengdarmetra
m
m
cm
cm
Niðurstöður

Endilega stimplið tölur í reiknivélina 2.1 sem verða 3 rúllur
Heildarverð:

SÉRPÖNTUN - EKKI SKILAVARA: Reiknivélin metur u.þ.b. það magn af veggfóðri sem þú þarfnast miðað við þínar mælingar. Sérefni taka ekki ábyrgð á ofáætlun eða skorti á veggfóðursmagni á grundvelli þessara útreikninga þar sem of margir þættir geta spilað inn í efnisþörf. Þar má nefna ónákvæmar mælingar, dyr, glugga, mynsturgerð, mistök í uppsetningu og fleira. Ef flókið er að finna út magn mælum við með að ráðfæra sig við fagmann áður en pantað er.

Vörunúmer: 85551 Vöruflokkar: , , Stikkorð: , , ,

Tengdar vörur

Karfa

0
image/svg+xml

No products in the cart.

Continue Shopping