Ný sjónvarpsauglýsing frá Sérefnum er komin í loftið! Bara litir, einskær gleði og tær hamingja – hún endurspeglar einmitt tilfinningar okkar á 10 ÁRA AFMÆLI fyrirtækisins. Siggi Sigtryggs semur tónlistina en hann á m.a. nýja lagið með Páli Óskari, “Við vinnum þetta fyrirfram”. Myndefnið kemur frá móðurfélagi Nordsjö, sem styrkir Color Run og ýmis fegrunaraðgerðir í fátækrahverfum fjölda borga um allan heim. Myndskeiðin í auglýsingunni eru einmitt tengd slíkum verkefnum. Við erum alveg gífurlega ánægð með árangurinn.
Nýmálað á Nönnustíg
Húsið við Nönnustíg á stutt í áttræðisafmælið. Þrátt fyrir það er húsið einstaklega glæsilegt eftir viðgerðir og málun í sumar.