fbpx

Að mála timburhús – með hálfþekjandi ONE Transparent nanóakrýl

Að mála timburhús

með ONE Transparent hálfþekjandi nanóakrýl

 

Aðferð

Undirlag skal vera hreint og þurrt (mest 16% raki í viði). Ætíð skal bera á viðinn endilangt og forðast þannig að búa til færslu­skil, þ.e. aukalitstyrk á miðju borði. Þetta á bæði við um nýmálun og endurmálun. Þegar litstyrkurinn er orðinn nægilegur skal nota efnið með minni litstyrk eða glært.

 

Nýmálun

  1. Slípið og opnið heflaðan við með sandpappír, t.d. nr. 100. Gegndreypið alla fleti sem mála skal með Tinova Wood Base Oil og þá sérlega vel gljúpa fleti eins og endatré.
  2. Málið yfir 2 umferðir af ONE Transparent.
  3. Á lítið hallandi flöt og þar sem veðurálag er mikið skal bera aukaumferð.

Endurmálun

  1. Þvoið allan flötinn með Original Målartvätt og vatni. Blandið Målartvätt með allt að 20 hlutum vatns móti 1 hlut hreinsiefnisins. Fyrir mjög óhreina fleti skal blanda vatni í hlutfallinu 10:1. Berið blönduna á með svampi eða bursta. Látið blönduna liggja á fletinum í nokkrar mínútur og skrúbbið af með blautri tusku eða bursta og vatni. Ef á fletinum er mygla, mold eða annar gróður skal þvo flötinn með þörunga- og mygluhreinsi. Skolið vel eftir á með vatni. Látið flötinn þorna vel áður en málað er.
  2. Fjarlægið gamla og lausa málningu. Slípið gljáandi fleti matta með sandpappír til að tryggja góða viðloðun. Fúa eða gráma í tré skal pússa niður eða fjarlægja með grámahreinsinum Tinova Wood Cleaner uns komið er í eðlilegan viðarlit. Eftir meðferð með grámahreinsi þarf viðurinn að þorna vel í 1-3 daga.
  3. Beran við skal gegndreypa með Tinova Wood Base Oil.
  4. Málið yfir 2 umferðir af ONE Transparent.
  5. Á lítið hallandi feti og þar sem veðurálag er mikið skal bera aukaumferð.

Annað

Hrærið vel í dósinni fyrir notkun. Málið ekki ef sól skín beint á flötinn eða ef hætta er á regni eða daggarmyndun innan fárra klukkustunda eftir lok verks.

*Nákvæmari upplýsingar um efnin má finna í tækniblöðum.

 

Heilsufars- og umhverfismál

Ekki láta málningar­dósina standa opna meðan á verki stendur. Þrífið verkfæri strax eftir notkun. Athugið að kviknað getur í olíublautum tuskum og tvisti af sjálfu sér og verður að bleyta þær með vatni áður en þeim er hent á öruggan stað. Hellið ekki málningar- og hreinsiefnaleifum í niðurföll. Skilið efnaleifum og tómum umbúðum til endurvinnslustöðva.

Tæknilegar upplýsingar

Til notkunar: Utanhúss

Bindiefni í ONE Transparent: Akrýl-alkýð

Gljástig: Hálfmatt

Yfirmálun: Wood Base Oil 24 klst; ONE Transparent 6 klst

Hiti við málun: Minnst +5°C, mest +25°C

Rakastig: 40-80%

Þynning: Vatn, mest 10%

Verkfæri: Penslar, rúllur, sprautur

Þekja: Wood Base Oil 4,5-5,5 m2/l; ONE Transparent í nýmálun 6-8 m2/l en endurmálun 8-10 m2/l

Hreinsun: Vatn

Geymsla: Í frostfríu rými

Fleiri blogg

Nýmálað á Nönnustíg

Húsið við Nönnustíg á stutt í áttræðisafmælið. Þrátt fyrir það er húsið einstaklega glæsilegt eftir viðgerðir og málun í sumar.

Karfa

0
image/svg+xml

No products in the cart.

Continue Shopping